7.7.2008 | 15:54
Himnarnir að hrynja???
Þetta er ótrúlega magnað og furðulegt hvað hefur verið hljótt um þetta í fjölmiðlum (eða kannski fylgist maður bara ekki nógu vel með).
Þess rifjar upp fyrir manni hvað við erum lítil og viðkvæm, Jörðin okkar og við sem á henni lifum (a.m.k. í þessum fáu víddum sem við skynjum og þekkjum). Umræðan minnir mann á ýmislegt úr sögunni sem við brosum að í dag, eins og t.d. trú manna á heimsenda ýmiss konar. Íbúar Gaulverjabæjar voru einmitt alltaf með það á bak við eyrað að himnarnir gætu dottið í hausinn á þeim.
En það er kannski það sem er svo spennandi við þessa jarðvist og þekkingarleit mannsins, að við vitum svo lítið - þurfum bara að vera meðvituð um það til að vera opin fyrir að læra meira og meira.
En þessi tilraun er alveg hrylliega spennandi - í orðsins fyllstu merkingu. Spurning hvort við förum að flakka um aðrar víddir alheimsins í kjölfarið - hver veit.
![]() |
Ekki hætta á ragnarökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 8.7.2008 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)